Ég er á tjaldstæði í Kolding, á austurströnd Danmerkur. Mundi allt í einu í gærkvöldi eftir krukku af hveiti í matarskúffunni, og af því að ég átti líka til egg, mjólk og smjör, þá skellti ég í lummur í morgunmatinn, og bætti svo við beikonteningum og spældi hitt eggið. Þetta er örugglega matarmesti morgunmaturinn sem ég hef borðað í ferðinni.
Held ég þurfi að fara og versla í ískápinn á eftir.
Viajante Líst mjög vel á þennan morgunmat hjá þér 😊