Dagurinn byrjaði vel: ég var sloppin frá borði um ellefu og brenndi beint út á hraðbraut. Áfangastaður: Hamborg.
Stoppaði aðeins í Bilka í útjaðri Árósa og var svo nýkomin út á hraðbrautina aftur þegar bíllinn fór að missa afl og svokallað glóðarperuljós birtist í mælaborðinu. Ég skellti neyðarljósunum á og vék út á vegaröxl og hökti út af hraðbrautinni á meðan bíllinn hægði sífellt á sér og gangurinn í honum var eins og í trillu eða gamalli dráttarvél. Sat svo úti í vegarkanti í 26 °C hita og hringdi eftir hjálp.
FÍB gat ekkert hjálpað mér - þau eru ekki með gagnkvæman samning við samsvarandi samtök í DK. Ég ber því ein allan kostnað af dráttarbílnum, sem er um 20 þúsund.
Dráttarbílstjórinn og maður á VW-verkstæðinu þangað sem bíllinn var dreginn voru mér sammála um að þetta væru sennilega spíssarnir. Vona bara að það verði hægt að laga þetta strax á mánudaginn svo ég geti haldið áfram för.
Ég er nú á hóteli í miðborg Árósa, og vitiði hvað: það var að byrja bæjarhátíð hérna.Leer más
ViajeroLán í óláni að þú hafir hitt á bæjarhátíð í Árósum 😉
Viajero Lán í óláni að þú hafir hitt á bæjarhátíð í Árósum 😉