Ég fór út á Grenen í dag - nyrsta punkt Danmerkur. Landslagið hérna er eyðilega fallegt, sandhólar vaxnir grastegundum, kjarri og trjám. Birtan minnir á Ísland, mjög tær og loftið er hreint og hressandi.
Skoðaði m.a.s. kirkjuna í sandinum og skotbyrgi frá seinni heimsstyrjöld. Kirkjan var afhelguð og kirkjuskipið rifið þegar ljóst varð að ekki væri hagkvæmt að verja hana fyrir því að sökkva í sandinn, en turninn fékk að standa sem siglingamerki.
Taldi 12 stór flutningaskip úti á Kattegat.
Skagen, þ.e. bærinn, ekki skaginn sjálfur, er mjög gulur - maður sér varla annan lit á húsum í gamla bænum.もっと詳しく
旅行者Ætli bæjarbúar hafi farið í magnkaup á gulri málningu 😉
Þangað og heim afturÉg held jafnvel að það sé kannski í bæjarsamþykktum að hafa svona gulan blæ á húsunum. Þau einu sem ég sá sem voru öðru vísi voru hvít, dökkrauð eða með beran múrsteininn, og öll timburhús voru svört.
旅行者 Ætli bæjarbúar hafi farið í magnkaup á gulri málningu 😉
Þangað og heim aftur Ég held jafnvel að það sé kannski í bæjarsamþykktum að hafa svona gulan blæ á húsunum. Þau einu sem ég sá sem voru öðru vísi voru hvít, dökkrauð eða með beran múrsteininn, og öll timburhús voru svört.