Kaysersberg, France

Hér eru meiri myndir frá Kaysersberg.
Riquewihr

Ég labbaði í bæinn í morgun. Tjaldstæðið er hinum megin við þjóðveginn og séð þaðan er Riquewihr svo til ósýnileg. Maður heldur að þetta sé kirkja og tvö hús, en hún erEn savoir plus
Smávegis fyrir jólabörnin

Sérstaklega vinkonusaumaklúbbinn. Það er nefnilega jólabúð í Riquewihr, og eftir að hafa séð verðin á dótinu sem er selt þar finnst mér jólabúðin á Laugaveginum alls ekki svo dýr lengur....
Hunawihr

Ég fékk að gera góðverk í dag. Ég fór sem sagt og heimsótti storkamiðstöð í Hunawihr sem hefur það að markmiði að bjarga storkastofninum á svæðinu frá útrýmingu. Þarna eruEn savoir plus
Strasbourg

Það var hátt í 30° C hiti þegar ég kom til Strasbourg um hádegisleitið og þegar þetta er skrifað, í Speyer í Þýskalandi kl. 19:30, eru 27° C, þannig að þið getið ímyndað ykkurEn savoir plus
Bergpark Wilhelmshöhe, Kassel

Mér skilst að ég hafi hitt þennan náunga áður, en ég man bara ekkert eftir því. Reyndar man ég mjög lítið úr fyrra tjaldferðalagi fjölskyldunnar um Evrópu þegar ég varEn savoir plus
Wolfsburg, Þýskalandi

Ég fór og heimsótti Wolkswagen-safnið. Þar var marga bíla að sjá, s.s. hinar ýmsu týpur bifreiða sem VW hefur framleitt, prótótýpur sem aldrei fóru í framleiðslu, sérframleidda bílaEn savoir plus
Nordsee Camping zum Zeehund, DE

Ég var í Simonsberg, rétt hjá Husum, í nótt. Þetta er önnur dýrasta gistingin í ferðinni, rúmar 29 evrur, en staðsetningin er flott og undan engu að kvarta, a.m.k. ekki ef manni er samaEn savoir plus
Hvide Sande, Danmörku

Fór í indæla gönguferð á ströndinni - með fulla skó af sandi af því það var of kalt til að vera berfætt. Fann ókeypis húsbílastæði, en vissi betur en að nýta mér það, þvíEn savoir plus
Shetland Islands, United Kingdom

Sigldum framhjá. Það væri gaman að koma þarna aftur.
Tórshavn, Faroe Islands

Lítið um að vera hér, enda annar í hvítasunnu, en bærinn er alltaf jafn sjarmerandi.
Seydisfjordur, Iceland

Það var svo hvasst að það var varla stætt úti á dekki þegar siglt var inn á Seyðisfjörð, og kalt eftir því. Ég tók þessar myndir og fór svo inn og horfði á fjöllin út um gluggann á kaffihúsi skipsins.
Jökulsárlón

Maður keyrir ekki fram hjá svona stað án þess að stoppa og taka minnst eina mynd 😊
Kirkjubæjarklaustur, Iceland

Maður tekur ekki ,,road trip" á Íslandi án þess að fá sér eina svona.
Afgreiðslustúlkan í sjoppunni: "Sorry, I don't speak Icelandic".
Kópavogur, Iceland: Ferðalok

Ferðinni lýkur á sama hátt og hún endaði: með mynd af kílómetramælinum.
27.537 km eknir - ekki alveg jafn rómantísk tala og ég byrjaði með, en bara ágætis vegalengd. Á myndinniEn savoir plus
Upplifun mín af þýskum hraðbrautum

Myndin sem þessi hlekkur opnar lýsir að hluta til upplifun minni af þýskum hraðbrautum: http://themetapicture.com/normal-driver-vs-audi…
Þetta er eins og úr einhverju ævintýri ;) kv. Svava