Veðrið...
9. mai 2017, Tyskland ⋅ ☀️ 11 °C
...er talsvert betra en í gær, en mikið djö. var kalt í nótt! Hitinn átti að fara niður undir frostmark og hefur örugglega gert það.
Ég er annars á Rügen-eyju og það er sól meðLes mer
Rügen...
10. mai 2017, Tyskland ⋅ ☀️ 11 °C
...er mjög fallegur staður, en eins og margir aðrir er hún óaðlaðandi í rigningu. Ég ók út á Kap Arkona, en þar eru þrír fallegir vitar og fjórði turninn sem mun hafa veriðLes mer
Næturstaður
11. mai 2017, Tyskland ⋅ ☀️ 11 °C
Kamerun tjald- og húsbílastæðið í Waren er örugglega snyrtilegasti staðurinn sem ég hef gist á hingað til. Verst með myndskreytingarnar á snyrtiaðstöðunni...
Ravensbrück, Germany
11. mai 2017, Tyskland ⋅ 🌧 14 °C
Var hérna í dag. Erfitt að klökkna ekki yfir örlögum þeirra tugþúsunda kvenna sem voru látnar vinna þrælavinnu hérna í stríðinu.
Potsdam, Germany
11. mai 2017, Tyskland ⋅ ☀️ 19 °C
Búin að fá góðan labbitúr í dag, tæplega sex km hringur um Sanssouci-lystigarðinn. Býst við að fara að skoða hallir á morgun.
Er komin á það sem ég held að sé mestaLes mer
Fyrsta heita máltíðin
11. mai 2017, Tyskland ⋅ ☀️ 18 °C
Ég hef verið hikandi við að elda mat inni í bílnum, bæði út af lykt og hreinlæti. Ferðagashellan sem ég er með virkar illa utandyra ef það örlar á vindi og ef það hefur veriðLes mer
Ennþá í Potsdam
12. mai 2017, Tyskland ⋅ ☀️ 23 °C
Mig langar að setjast hér að. Staðurinn er hæfilega stór/lítill og fólkið hæfilega afslappað og vingjarnlegt til að ég gæti unað mér vel hérna.
Ég ætlaði að skoða hallir í dagLes mer
Berlín
13. mai 2017, Tyskland ⋅ ⛅ 17 °C
Ég "skrapp" til Berlínar í dag - tók lestina og skildi bílinn eftir. Ég fór þangað bara til að versla, þannig að ég tók ekki eina mynd. Kom til baka með Lowa gönguskó, vatnsþétta,Les mer
Potsdam, Germany
14. mai 2017, Tyskland ⋅ 🌫 11 °C
Ég ætlaði víst að lýsa þessu dýrðarinnar húsbílastæði sem ég er á. Það er inni í skógi, á bakka Havel-árinnar, sem reyndar minnir meira á stöðuvatn hérna, og er byggt áLes mer
Campingpark Sanssouci
14. mai 2017, Tyskland ⋅ 🌫 11 °C
Ég er komin til Dresden, en hér eru nokkrar myndir af Campingpark Sanssouci. Þær eru, eftir röð:
Aðsetur sumardvalarfólksins;
Dýralífið (2);
Skúta;
Vatnið í morgunkyrrðinni;
BíllinnLes mer
Meißen, Germany
14. mai 2017, Tyskland ⋅ ⛅ 17 °C
Ég var komin svo seint til Meißen að það borgaði sig ekki að fara að skoða kastalasafnið, þannig að ég ók til Dresden og er þar á húsbílastæði. Stoppaði samt nógu lengi til aðLes mer
Dresden, Germany
15. mai 2017, Tyskland ⋅ ⛅ 17 °C
Þegar ég gerði áætlunina fyrir daginn í dag gleymdi ég að mánudagar eru hefðbundnir lokunardagar fyrir söfn, og öll söfnin í Zwinger-byggingunni voru því lokuð. Hvað um það, égLes mer
Safnadagurinn mikli
16. mai 2017, Tyskland ⋅ ⛅ 17 °C
Ég var mætt í miðborgina á slaginu tíu og komin upp í Zwinger korter yfir, rétt til að heyra í klukknaspili byggingarinnar. Ég held að bjöllurnar séu úr postulíni!
Skoðaði einstaktLes mer
Sanspareil, Þýskalandi, 17. maí
17. mai 2017, Tyskland ⋅ ☀️ 23 °C
Ég ók í gegnum Frankishe Schweiz á leiðinni til Bamberg, og kom þar við í Felsengarten Sanspareil, sem mætti þýða sem "steinagarðurinn óviðjafnanlegi".
Ég ók í gegnum hæðótt,Les mer
Bug, Þýskalandi, 17. maí
17. mai 2017, Tyskland ⋅ ☀️ 24 °C
Ég fann heimilisfang tjaldstæðisins sem ég er á í 10 ára gamalli ferðahandbók. Það er svo fastgróið að það hefur sitt eigið strætóstopp, og geri aðrir betur.
Bug er lítið þorpLes mer
Bamberg, Þýskalandi, 18. maí
18. mai 2017, Tyskland ⋅ ⛅ 25 °C
Í dag var svipað heitt og í gær, en ég klæddi mig eftir veðri, smurði á mig sólarvörn, passaði mig að vera alltaf með eitthvað til að drekka við hendina, og gekk h-æ-g-t, enda er égLes mer
Waldsassen, Þýskalandi, 19. maí
19. mai 2017, Tyskland ⋅ ☀️ 23 °C
Þessi basilika er skoðunarverð ef menn hafa áhuga á skreytilist, því þó hún sé einföld að sjá að utanverðu, þá er hún eins og ofskreytt rjómaterta að innan, þ.e.a.s. fyrir utanLes mer
Berchtedsgaden, Þýskalandi (19. maí)
20. mai 2017, Tyskland ⋅ ⛅ 13 °C
Vaknaði frekar seint í morgun, enda lenti ég í þvílíkri baráttu við náttúruöflin í gær að ég var alveg búin á því þegar ég loks komst í örugga höfn. Ég lenti sem sagt íLes mer
Königssee, Þýskalandi, 20. maí
20. mai 2017, Tyskland ⋅ ⛅ 13 °C
Fór í siglingu á Königssee. Læt myndirnar tala.
Berchetsgaden, Þýskalandi, 21. maí
21. mai 2017, Tyskland ⋅ ⛅ 10 °C
Það er rignig og og lágskýjað. Fer ekki mikið í gönguferð í þjóðgarðinum (skildi pollagallann eftir heima) eða upp á Kehlstein. Langar mest að fara til Salzburg, því hennar er hægtLes mer
Zugspitze, Þýskalandi/Austurríki
22. mai 2017, Tyskland ⋅ ☀️ 10 °C
Fyrst mænir maður á tindinn;
síðan gerir maður eitthvað í því;
dáist að dýralífinu;
fær sér hressingu;
og dáist að útsýninu á leiðinni niður (Eibsee).
Fögur fjallasýn ogLes mer
Partnachklamm, Garmisch-Partenkirchen
22. mai 2017, Tyskland ⋅ ⛅ 22 °C
Ég náði loksins öðrum góðum labbitúr úti í náttúrunni. Þegar ég kom niður af Zugspitze dreif ég mig með strætó niður að skíðaleikvanginum sem var byggður fyrirLes mer
Friedrichshafen við Bodensee, 23. maí
23. mai 2017, Tyskland ⋅ ⛅ 24 °C
Ætlunin var að skoða Neuschwanstein í dag. Ég hef komið þangað áður, en nú ætlaði ég að skoða kastalann að innan. Þegar þangað kom var ég hins vegar ekki í stuði til að fara ogLes mer
Riquewihr, Alsace, Frakklandi, 24. maí
24. mai 2017, Frankrike ⋅ ⛅ 21 °C
Ég er komin til Frakklands. Fór fyrst til Colmar og eyddi þar tveim tímum eða svo á Unterlinden safninu. Ráfaði síðan um gamla miðbæinn og er að hugsa um að fara aftur á morgun og faraLes mer
Riquewihr, France
25. mai 2017, Frankrike ⋅ ⛅ 19 °C
Í dag er almennur frídagur og ég ákvað því að taka mér frí frá ferðamennskunni. Ætla að vera hér í dag og þrífa bílinn, fara í gönguferð, elda góðan mat og lesa.
Hér gefurLes mer













































































