Í Móseldalnum
6. Juni 2023 in Deutschland ⋅ ☀️ 21 °C
Það er lítið af mér að frétta annað en að ég er búin að vera á ferðalagi. Hef ekið eftir þjóðvegum og sveitavegum og notið útsýnisins yfir skóga og blómlegar sveitir Frakklands,Weiterlesen
Schweich, Móseldalnum
6. Juni 2023 in Deutschland ⋅ ☀️ 19 °C
Gisti í nótt á bökkum Mósel. Labbaði upp í bæinn og verslaði í uppáhalds þýsku kjörbúðinni minni, Edeka. Kvöldmaturinn var ferskur aspas, brasaður í smjöri með smá salti. Tók umWeiterlesen
"On the road again..."
8. Juni 2023 in Deutschland ⋅ ☀️ 22 °C
Ég var í nótt á því alfallegasta tjaldsvæði sem ég hef gist á í ferðinni, í Wolfsmühle, upp með Lahn, sem er hliðará Rínar. Þarna leikur lausum hala alls konar fiðurfé, og þaðWeiterlesen
Lüneburg - Árósar
10. Juni 2023 in Dänemark ⋅ ☀️ 21 °C
Skoðaði í gær Saltsafnið í Lüneburg (mjög áhugavert; bærinn situr ofan á saltnámu) og gamla miðbæinn þar. Lenti svo í næstum klukkutíma umferðartöfum í útjaðri Hamborgar í yfirWeiterlesen
Komin til Hirtshals
11. Juni 2023 in Dänemark ⋅ 🌙 15 °C
Í dag dólaði ég mér áfram norður eftir Jótlandi, kíkti á loppumarkað í Álaborg, verslaði í Bilka, fékk mér eina franska, og kom mér til Hirtshals.
Fékk mér labbitúr um bæinn ogWeiterlesen
Norröna
13. Juni 2023 in Dänemark ⋅ ⛅ 17 °C
Í gær gekk ég út á Grenen, nyrsta odda Danmerkur, þar sem Kattegat og Skagerrak mætast. Skilin eru sýnileg, því öldurnar koma úr sitt hvorri áttinni og ýmist stokkast eða skellaWeiterlesen
Út af strönd Noregs
13. Juni 2023 in Norwegen ⋅ ☁️ 19 °C
Best að nýta símasambandið á meðan það er til staðar 🙂
Það er orðin hefð hjá mér að fá mér smurbrauð með rækjum og laxi einu sinni í hverri siglingu. Ákvað að splæsa í bjór með í þetta skiptið.
Seyðisfjörður
15. Juni 2023 in Island ⋅ ☀️ 13 °C
Sit í bílnum uppi á millidekki og bíð eftir að verða hleypt í land. Er að hugsa um að fá mér morgunmat á Egilsstöðum á meðan það teygist úr bílalestinni. Leiðist fátt einsWeiterlesen
Vaglaskógur
15. Juni 2023 in Island ⋅ ☁️ 14 °C
,, Allt er þegar þrennt er" segir máltækið. Mikið innilega vona ég að það sé rétt, því að í dag var Kaddi á verkstæði í þriðja skiptið í ferðinni.
Á leiðinni niðurWeiterlesen
Komin heim
16. Juni 2023 in Island ⋅ ☁️ 10 °C
Ég skilaði mér heim til mín um níuleytið í kvöld og ók inn í gjörningaþoku í Þrengslunum. Ég er þakklát fyrir að hafa komið heil heim, og þó að ég hafi lent í smá bílaveseni,Weiterlesen








































:) [Bára Mjöll]