Heima í Reykjavík
20 марта 2017 г., Исландия ⋅ ⛅ 2 °C
(Af einhverjum orsökum staðsetur vefsíðan mig í Grafarvogi, en hvað um það).
Ég flutti mig hingað af blog.is af því að það er auðveldara að blogga hérna þegar maður er áЧитать далее
Útþrá
20 марта 2017 г., Исландия ⋅ ☁️ 1 °C
Það hefur staðið til að fara í þetta ferðalag síðan ég eignaðist ferðabílinn minn í nóvember 2014, eða öllu heldur frá því að innréttingum á honum lauk.
Bíllinn sem umЧитать далее
Áfangastaðir
22 марта 2017 г., Исландия ⋅ ☀️ -9 °C
Hvernig velur maður sér áfangastaði fyrir flakkferð? Það er ósköp gaman að mæta bara á staðinn og ráfa um og uppgötva staði og njóta ferðafrelsisins, en maður vill líka fá einsЧитать далее
Ferðakvíði
24 марта 2017 г., Исландия ⋅ ⛅ 22 °C
Ég er þannig að tilhlökkunin er hluti af ferðalaginu. Hún drífur mig áfram við gerð ferðaáætlunar og færir mér vellíðan þegar ég hugsa um það sem fram undan er. Nú erЧитать далее
Fór með bílinn á verkstæði í morgun
6 апреля 2017 г., Исландия ⋅ ☀️ 19 °C
Fékk þar að vita að gamla vandamálið, sem snerist um einhvern spíss í endsneytisinnspýtingunni, hefði aldrei sést áður þar á bæ. Þetta er ekki beinlínis traustvekjandi. Ég vona baraЧитать далее
Jæja, þá er bílavandamálið vonandi leyst
7 апреля 2017 г., Исландия ⋅ 🌧 7 °C
Fékk símtal frá Heklu og villuboðin virðast stafa af því að það gleymdist að gera eitthvað í innkölluninni um daginn, þannig að ég þarf ekkert að borga. Vona að þetta sé þaðЧитать далее
Þetta er allt að koma...
7 апреля 2017 г., Исландия ⋅ ☁️ 7 °C
Ég fór um daginn og varð mér út um kortabók fyrir Evrópu og alþjóðlegt tjaldbúðaskírteini hjá FÍB. Gleymdi auðvitað að kaupa ÍS-merkið til að setja aftan á bílinn, þannig aðЧитать далее
Undirbúningurinn heldur áfram
13 апреля 2017 г., Исландия ⋅ ⛅ 1 °C
Í gær tók ég mig til og bar inn úr bílnum allt sem í honum var og sem ekki tilheyrir honum beinlínis, s.s. landakort, teppi, útivistarfatnað og skó sem ég hef í honum árið um kring.Читать далее
Búin að þrífa bílinn...
13 апреля 2017 г., Исландия ⋅ ☁️ 0 °C
Bíllinn er orðinn skínandi hreinn að innan og angar af viðarolíunni sem pabbi bar á innréttinguna, og tjöruhreinsun er líka lokið. Nú er bara eftir að bóna hann, sem gerist á morgun. ÍЧитать далее
Það er skrítin tilfinning...
18 апреля 2017 г., Исландия ⋅ ⛅ 4 °C
...að vera að pakka niður fyrir svona langt ferðalag og þurfa ekki að hugsa um að halda þyngdinni og fyrirferðinni á farangrinum undir 23 kg í einni tösku. Auðvitað er ákveðið hámarkЧитать далее
Fastir punktar
19 апреля 2017 г., Исландия ⋅ ☁️ 5 °C
Einhver minntist á það við mig um daginn að ég væri með ansi marga staði á ferðaáætluninni minni fyrir þessa reisu, en málið er að þetta er bara óskalisti. Svo eru sumir staðirnirЧитать далее
Spennan eykst
27 апреля 2017 г., Исландия ⋅ ⛅ 7 °C
Jæja, þá er innan við vika til brottfarar, og titringurinn er að byrja. Ég er yfirleitt pollróleg dagana fyrir ferðalög og tek síðan út spenninginn með svefnleysi nóttina fyrirЧитать далее
Næstum búin að pakka í bílinn
28 апреля 2017 г., Исландия ⋅ 🌧 4 °C
Það kom mér á óvart að mér tókst ekki að fylla í allt pláss í bílnum. Fötin eru komin út, svo og öll eldurnar- og mataráhöld og ýmsar nauðsynjar, ásamt kortum og leiðsögubókumЧитать далее
Í byrjun ferðar
1 мая 2017 г., Исландия ⋅ 🌧 7 °C
Mér finnst þetta vera góð byrjun (sjá mynd)
Varmahlíð
1 мая 2017 г., Исландия ⋅ ⛅ 13 °C
Spurning: Hvað er verra en að keyra í sviptivindasömu roki?
Svar: Að keyra í sviptivindasömu roki og vera í spreng.
Á Egilsstöðum
2 мая 2017 г., Исландия ⋅ ☁️ 9 °C
Veðrið var svo leiðinlegt í gær að ég ók, með fáum stoppum, á Egilsstaði í gær. Ég hafði ætlað að taka því rólega, stoppa oft, teygja úr mér, jafnvel fara í labbitúr umЧитать далее
Búin að skoða mig um...
2 мая 2017 г., Исландия ⋅ ☁️ 11 °C
Gekk upp að Hengifossi og fékk þar góðan 5 km labbitúr. Fór að Skriðuklaustri, og sá etv. orminn...
Komin á Seyðisfjörð
3 мая 2017 г., Исландия ⋅ ⛅ 16 °C
Var hér í nótt. Rúntaði um allt og skoðaði bæinn og í dag er veður til að fara á röltið. Norræna beið mín í höfn - verst að geta ekki farið um borð og sofið þar...
Bíða, bíða, bíða
3 мая 2017 г., Исландия ⋅ ☀️ 19 °C
Nú bíður maður bara eftir að vera hleypt upp í skip.
Komin um borð
3 мая 2017 г., Исландия ⋅ ☀️ 15 °C
Það er góð sjóveðurspá alla leið, og það á að vera fínt veður í Þórshöfn á morgun.
Fréttir frá Tórshavn
4 мая 2017 г., Дания ⋅ ☀️ 13 °C
Ég komst hvergi í wifi-samband í Þórshöfn, og er reyndar komin til Danmerkur, en hér er mynd frá Þórshöfn.
Daugård, Denmark
7 мая 2017 г., Дания ⋅ ☀️ 15 °C
Mér skilst á frændfólki mínu sem ég heimsótti í Aarhus að vorið og ég höfum valið sama dag til að koma til Danmerkur. Hér var heitt og sól og notalegt að sitja úti í sólinni ogЧитать далее
Daugård, Denmark
7 мая 2017 г., Дания ⋅ ☀️ 15 °C
Var hér í nótt, á yndislega fallegu tjaldstæði.
Sit nú og sötra kaffi á MacD... og er búin að uppgötva að ég er með sjóriðu. Það virðist allt vera á hreyfingu í kringumЧитать далее
Wismar, Germany
8 мая 2017 г., Германия ⋅ ⛅ 8 °C
Var á þessu fína stellplatz í nótt, langminnsti bíllinn á staðnum. Hin myndin sýnir stærsta farartækið.
Vissi að gat ekki enst...
8 мая 2017 г., Германия ⋅ ☀️ 7 °C
Eftir sólina í gær er veðrið nú svalt og hvasst, með rigningu á köflum.
Ímyndið ykkur akstur á Kjalarnesinu í roki. Nema meðalhraðinn er 120 km/klst á hægri akreininni. Það erЧитать далее





























