Komin til Bolzano
5 de setembro de 2019, Itália ⋅ ☀️ 17 °C
Hef ekki tekið mikið af myndum enn þá, en hér er ein frá Schwangau, þar sem ég gisti síðustu nótt.
Ég þakka nú bara fyrir að vera óslösuð
6 de setembro de 2019, Itália ⋅ ⛅ 16 °C
...og bíllinn í heilu lagi. Í gær lenti ég nefnilega í því á autoströdunni að það svínaði fyrir mig lítill flutningabíll. Á fullum hraða (110 km/klst) hefði þetta orðiðLeia mais
Bolzano og áfram
6 de setembro de 2019, Itália ⋅ 🌧 17 °C
Ég náði til Bolzano í hádeginu í gær og villtist bara einu sinni í leit minni að hótelinu sem mamma og pabbi voru á. Það er lítið, einkarekið, og notalegt, og ég gat lagt, meðLeia mais
Komin til Feneyja, eða tæknilega Veneto
7 de setembro de 2019, Itália ⋅ ⛅ 22 °C
Ég er nefnilega úti á tiltölulega mjóu nesi sem, ásamt Lido-sandrifinu og nokkrum eyjum, myndar ytra byrði lónsins sem umlykur Feneyjaborg. Ákvað að vera þar af ýmsum ástæðum ogLeia mais
Rigningardagurinn mikli
8 de setembro de 2019, Itália ⋅ 🌧 18 °C
Það var þungbúinn himinn sem mætti mér þegar ég kom út út bílnum í morgun. Smá gúgl staðfesti að það var spáð þrumuveðri og miklar líkur á rigningu, svo ég klæddi migLeia mais
Jæja, ég fékk sól í dag...
9 de setembro de 2019, Itália ⋅ ⛅ 20 °C
...og það er sólarspá næstu daga, en bara þægilega heitt. Hér eru nokkrar svipmyndir frá deginum.
1. Hádegissnarl.
2. Þarna langar mig að búa.
3.-4. Inni í grímubúð.
5. ForvitnilegirLeia mais
Komin til San Marino...
10 de setembro de 2019, San Marino ⋅ ⛅ 23 °C
...eftir ekkert rosalega langa dagleið, en mjög seinfarna. Ég lagði af stað frá Cavallino-Treporti um kl. 8:00 og var komin til San Marino um 15:15 = ca. 7 klukkutímar sem tók að komast tæpaLeia mais
Morgunganga í San Marino
11 de setembro de 2019, San Marino ⋅ ☀️ 14 °C
Ég tók strætó eldsnemma í morgun, frá tjaldstæðinu og upp í virkisborg San Marino. Þar var ekki túrista að sjá, bara fólk á leið til vinnu og að undirbúa sig fyrir daginn.
1.Leia mais
Komin til Siena
11 de setembro de 2019, Itália ⋅ ☀️ 28 °C
Vegalengdin var lítið styttri í dag en í gær, en ég var bara 4 1/2 tíma á leiðinni, enda valdi ég að fara hraðbraut fyrstu ca. 50 km og var síðan svo heppin að lenda á vegum þar semLeia mais
Svipmyndir frá Siena
12 de setembro de 2019, Islândia ⋅ ⛅ 7 °C
Siena er mjög falleg, en það var djöfullega heitt hérna í gær og ætlar að verða verra í dag. Ég er flúin inn í loftkælda verslunarmiðstöð og er að fá mér að borða og ætlaLeia mais
San Gimignano
13 de setembro de 2019, Itália ⋅ ☀️ 30 °C
Ath. Netsambandið hérna er hroðalegt. Myndirnar kom inn um leið og hægt er.
Var í San Gimignano í morgun. Hún er talin vera ein best varðveitta miðaldaborg Ítalíu (hvar hef ég heyrtLeia mais
Flórens
14 de setembro de 2019, Itália ⋅ ⛅ 27 °C
Kom til úthverfis Flórens í gær og gat lítið annað en að koma mér fyrir á tjaldstæðinu og falla í mók í hitanum. Hann fór í 34 °C.
Fór svo inn í miðborg í morgun. Komst inn íLeia mais
Flórens-Pisa, með viðkomu í Primark
15 de setembro de 2019, Itália ⋅ ☁️ 26 °C
Ég ók frá Flórens til Pisa í dag. Aksturinn tók ekki nema um 3 tíma, en ég var dugleg að stoppa til að viðra mig, og fór m.a. í Primark og fékk þar hlý náttföt til að nota íLeia mais
Nú er ég hætt þessu!
16 de setembro de 2019, Itália ⋅ 🌙 23 °C
Ég er búin að gefast upp á hitanum og ætla að taka stefnuna norður á bóginn. Það er lítið mál að vera í svona hita á daginn, en að sofa í þessu á nóttunni er skelfilegt. EiniLeia mais
Það er ekki neitt svalara hérna, en...
17 de setembro de 2019, França ⋅ ☀️ 27 °C
...bara vitneskjan um að á morgun sný ég nefi í norður í leit að aðeins svalara veðri er nóg til að mér líður strax betur. Ég er einhvers staðar í nágrenni við Aix-en-Province ogLeia mais
Nîmes
18 de setembro de 2019, França ⋅ ⛅ 27 °C
Í dag skoðaði ég eitt best varðveitta hringleikahúsið sem til er frá tímum Rómverja. Það er staðsett í Nîmes, sem var á sínum tíma mikilvæg fyrir tangarhald Rómarveldis áLeia mais
Pont d'Arc
19 de setembro de 2019, França ⋅ ⛅ 16 °C
Ég uppgötvaði í morgun, á leiðinni af tjaldstæðinu í Avignon, að þessi hálfa brú, sem mun vera eitt af undrum bæjarins, var rétt hinum megin við ána (Rhône). Labbaði aðeins umLeia mais
Ég var í gær á tjaldstæði úti í sveit...
20 de setembro de 2019, França ⋅ ☀️ 8 °C
...og umkringd hænum. Ólíkt hundum, sem betla frekar kurteisislega, þá ógna þessi kvikindi manni og sveima eins og illa lyktandi hákarlar þar til maður lætur undan og gefur þeim að éta.Leia mais
Meira frá hænsnatjaldstæðinu
20 de setembro de 2019, França ⋅ ☀️ 24 °C
Þetta er svo innilega sjarmerandi.
Komin til Lúxemborgar
21 de setembro de 2019, Luxemburgo ⋅ ☀️ 21 °C
Verð hér á sama tjaldstæðinu í minnst 2 daga, kannski 3.
Á svo eftir að ákveða hvað ég geri næst. Kannski fer ég til Belgíu eða Hollands, eða skoða mig um í NV-Þýskalandi, núLeia mais
Lux-Trier-Köln
23 de setembro de 2019, Alemanha ⋅ ⛅ 18 °C
Ég er komin með hálfgerðan ferðaleiða. Hann sprettur yfirleitt fram í lok 3. eða byrjun 4. viku langra ferðalaga hjá mér og lýsir sér í því að mig langar ekkert sérstaklega aðLeia mais
Köln
24 de setembro de 2019, Islândia ⋅ ☁️ 11 °C
Hvað gerir maður þegar ferðaleiðinn sækir á?
Jú, maður breytir til. Þess vegna fór ég í dýragarð í morgun, og langan labbitúr inn í miðborg Kölnar. Kíkti inn í dómkirkjuna,Leia mais
Hanover
25 de setembro de 2019, Alemanha ⋅ 🌧 15 °C
Ég fór og skoðaði Sprengel-nútímslistasafnið í Hanover. Sá þar margt bæði áhugavert og skrítið, og líka illskiljanlegt, fallegt og umhugsunarvert, t.a.m. sýningu á því sem nasistarLeia mais
Var í Bremen, og þá hef ég komið til...
26 de setembro de 2019, Alemanha ⋅ ⛅ 17 °C
...allra þýsku sambandsríkjanna.
Hér er falleg haustmynd frá tjaldstæðinu sem ég gisti á í nótt, og listaverk gærkvöldsins (það er krítartafla í bílnum). Tók engar myndir á labbiLeia mais
Komin til gömlu góðu Danmerkur
27 de setembro de 2019, Dinamarca ⋅ 🌧 13 °C
Er á leiðinni út á Rømø, með viðkomu í Flensborg til að fara í húsbílabúð. Það er nefnilega þannig að ef maður vill hafa klósett í bílnum, þá þarf efni í það til að komaLeia mais
































































































